Hvað er Anarkismi? Útgáfa Bókasafn Dreifing Hafa Samband
Fréttir / Uppfærslur Greinar Bækur um Anarkisma TenglarMyndir

Ný bókaumfjöllun: Government eftir B. Traven 15. maí 2013 mið.


„Eins og bókartitill vísar til segir sagan frá eðli ríkisins: Kerfi þar sem fáir hafa valdastöður og þvinga alla undir sér til hlýðni. Kerfi þar sem þeir sem sækja í spillingu hafa aðgang að valdastöðum meðan aðrir, eins og flest fólk, vill lifa sínu lífi, með sínum nánustu, í friði. Þess vegna eru uppreisnir og byltingar sjaldgæf fyrirbæri: Fólk er seinþreytt til vandræða því það vill njóta lífsins.“

Úr nýrri umfjöllun um bókina Government eftir B. Traven.

 

 

Að standa í vegi fyrir framförum 28. apríl 2013 sun.


Af vef Saving Iceland hreyfingarinnar tengir Andspyrna á djúpa krufningu anarkistans Snorra Páls á framfaragoðsögninni.

http://www.savingiceland.org/is/2013/04/getur-thu-stadid-i-vegi-fyrir-framforum-ferdasaga-ur-kaleidoskopiskri-timavel-angeli-novi/

 

 

Ný bókaumfjöllun: Seeing like a State – How Certain Schemes to Improve the Human Condition Have Fail 14. apríl 2013 sun.


Rörsýn ríkisins sýnir sig einnig í dæminu sem Scott tekur um franska arkitektinn Le Corbusier sem skipulagði heilar borgir útfrá sinni sýn á borgir sem „lífvélar“. Hann hannaði borgir með svæðum fyrir fólk að vinna í og öðrum svæðum fyrir fólk að lifa í, algerlega blindur á þá staðreynd að borg er ekki klasi af byggingum með hlutverk heldur summa allra athafna þeirra manneskja sem mynda borgina. Einnig bendir Scott á hvernig borgarskipulag séð ofan frá innan valdapýramída, miðast við gott aðgengi hers og lögreglu að íbúum borgarinnar. Scott tekur hér einnig fyrir gagnrýni Jane Jacobs á lífvélaviðhorfið gagnvart borgum.
______________________________________________

Sjá umfjöllun um Seeing Like a State – How Certain Schemes to Improve the Human Condition Have Failed eftir James C. Scott.

 

 

Ný bókaumfjöllun: Introduction to Civil War 5. mars 2013 þri.


Borgarastyrjöld í skilgreiningu „empire“ er blóðbaðsóreiða ofbeldishópa sem berjast um að verða nýtt ríki þegar yfirvaldstóm myndast. En kenningu Clastres má einnig skilja útfrá bíómyndaslagorðinu úr V for Vendetta: „Fólkið á ekki að óttast ríkisstjórnina heldur á ríkisstjórnin að óttast fólkið.“

Ákall um borgarastyrjöld sem hluta af voru daglega lífi, er ákall um meðvitaða og gagnrýna einstaklinga og hópa sem neita að falla undir skilgreiningar ríkisins. Manneskjur sem skilgreina líf sitt og veruleika útfrá eigin forsendum og berjast af hörku fyrir að fá að halda þeim forsendum.
___________________________

Sjá nýja umfjöllun um bók Tiqqun hóspins, Introduction to Civil War

 

 

Anarkisti stefnir íslenska ríkinu 2. mars 2013 lau.


Snorri Páll útskýrir hér hvernig gengur að halda uppi samskiptum við vél, hann hefur nú stefnt íslenska ríkinu.

http://www.wheelofwork.org/2013/02/25/sekur-um-thad-sem-eg-var-syknadur-var-af/

 

 

Fréttir 1 - 5 af 299
[Eldri fréttir]